Martin Thuesen kominn í Hólminn

Nýr leikmaður hefur bæst í hópinn hjá úrvalsdeildarliði Snæfells. Sá heitir Martin Thuesen og er danskur landsliðsmaður. Martin kom í Hólminn aðfararnótt mánudags og sat á bekknum í sigurleik Snæfells gegn Haukum.