Keflavík – Snæfell í kvöld

Hún er ekki með okkur sagan fyrir leikinn í kvöld þegar Snæfell heimsækir Keflavík í Sláturhúsið í Keflavík í lokaumferð Iceland Express-deildarkeppninnar. Því sagan segir okkur að Snæfell hefur aldrei unnið Keflavík í Sláturhúsinu í efstu deild karla. Hungrið ætti því að vera mikið hjá okkar strákum að skrá sig á spjöld sögu Snæfells með því að sigra í kvöld. Hvort það tekst er undir þeim komið og okkur stuðningsmönnum sem ætlum að fjölmenna á leikinn og hvetja Snæfell til sigurs. Leikurinn hefst kl.19:15.