Stórkostleg skemmtun á leiknum á fimmtudaginn

Það verður slegið upp ógleymanlegri skemmtun annað kvöld þegar Snæfell tekur á móti Keflavík í 1. leik 8 liða úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Á leiknum verður svakaleg kynning leikmanna, Tóti Teygjubyssa verður á staðnum, Skotleikur í boði Iceland Express og að sjálfsögðu brjáluð spenna. En við hvetjum fólk til að mæta snemma því fyrir leikinn munu tveir landsþekktir tónlistamenn gefa tóninn og má búast við að þakið lyftist af Fjárhúsinu þegar kapparnir stíga á stokk.