KR andstæðingar Snæfells í undanúrslitum

Í gærkveldi fóru fram oddaleikirnir í 8 liða úrslitum Iceland Express deildarinnar í körfuknattleik karla. Í Borgarnesi tóku Skallagrímsmenn á móti Grindvíkingum og höfðu gestirnir betur 97-81. Í Vesturbænum mætti KR-ingar austurbæingunum úr ÍR og höfðu heimamenn sigur 91-78. Það er því ljóst að Snæfell mætir KR í undanúrslitum og eru KR-ingarnir með heimaleikjaréttinn. Fyrsti leikurinn fer fram í DHL Höll þeirra KR-inga