Nonni nálægt því að stela sigri gegn KR

Þvílíkur leikur í gær þegar Snæfell heimsótti KR í 1 leik liðanna í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Okkar menn voru í áhorfendahlutverkinu í 33 mínútur af leiknum, en náðu samt sem áður að tapa einungis með 3 stigum 82-79.

Þvílíkur leikur í gær þegar Snæfell heimsótti KR í 1 leik liðanna í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Okkar menn voru í áhorfendahlutverkinu í 33 mínútur af leiknum, en náðu samt sem áður að tapa einungis með 3 stigum 82-79. Það var Nonni Mæju sem kveikti neistann í brjósti Snæfellinga með góðum 3. stigakörfum í 4. fjórðung og liðið tók við sé og náði að minnka muninn niður í 1 stig. Litlu munaði að Nonni næði að stela sigrinum með 3. stiga skoti sem skoppaði 3. sinnum á hringnum, enn allt kom fyrir ekki og KR-ingar unnu verðskuldaðan sigur.