Snæfell – KR í kvöld kl.20:00

Það verður blóðugur bardagi í kvöld þegar Snæfell mætir KR í 2. leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deildarinnar. Mikið verður um dýrðir á leiknum og ber þar helst Borgarskotið í boði Iceland Express og eru verðlaunin að þessu sinni ferð til Frankfurt. Einnig verða leikmenn kynntir með Ljósashowi, Tóti Teygjubyssa verður á svæðinu og heyrst hefur að meðlimir úr frábærri hljómsveit komi og hiti upp fyrir leikinn. Leikurinn hefst kl.20:00 og skulum við mæta snemma til að styðja okkar menn til sigurs.

ÁFRAM SNÆFELL