Rautt strik í Vesturbæinn!

Upp úr hádegi á morgun má búast við RAUÐU striki frá Snæfellsnesi að DHL-höll þeirra KR-inga. Gríðarleg stemmning hefur skapast fyrir leiknum á morgun og má búast við 4-500 manna snæfellskri sveit sem kemur til með að öskra úr sér lungun í stuðningi sínum við Berserkina frá Stykkishólmi. Við hvetjum fólk til að mæta tímanlega í DHL-höllina