Frábær stuðningur dugði ekki

Stuðningsmenn Snæfells voru í aðalhlutverki í gær þegar Snæfell og KR mættust 4. sinni í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar. Þrátt fyrir dapran leik heimamanna, stóðu áhorfendur þétt við sína menn og hvöttu þá til dáða þar til yfir lauk. KR-ingar unnu öruggan og verðskuldaðan sigur 80-104, og er því ljóst að hreinn úrslitaleikur milli þessara liða verður háður nk. fimmtudag. Ekki þarf að hafa áhyggjur af stuðningsmönnum Snæfells sem munu fjölmenna í DHL-höllina að vanda og berjast fram í rauðan dauðan. Vonandi að leikmenn liðsins fari að þeirra fordæmi því við ætlum okkur alla leið.

 

Áfram Snæfell

 

Tölfræði leiksins er hér