Stóri dagurinn runninn upp, orustan nálgast

Stundin nálgast sem við Snæfellingar höfum beðið óþreygjufullir eftir síðan á mánudag. Tíminn hefur liðið hægt, en loks gefst okkur tækifæri á hefnd. Í kvöld mun 500 mann vígaher frá Snæfellsnesi herja á vesturbæinn og snýr ekki aftur fyrr en fullnaðarsigri hefur verið náð. Kristileg gildi víkja í dag, því nú er það auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Hefndin verður sæt og við stöndum óumdeilt uppi sem sigurvegarar.