Sárt að tímabilið sé búið

Í gærkveldi lauk tímabilinu hjá Snæfelli, þegar liðið laut í lægra haldi fyrir KR-ingum eftir framlengdan leik 76-74. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 68-68, þar sem Brynjar hafði jafnað leikinn fyrir KR með 3. stiga skoti þegar 3 sek. voru eftir. Það er gríðarlega sárt að falla út á þennan hátt en leikmenn Snæfells geta borið höfuð hátt því þeir hafa staðið sig frábærlega í vetur.

Leikmenn Snæfells vilja koma á framfæri þakklæti til stuðningsmanna Snæfells vegna þess gríðarlega stuðnings sem liðið hefur fengið í vetur. Það eru forréttindi að fá að spila fyrir stuðningsmenn Snæfells, sem voru sjálfum sér og félaginu til sóma í gær.