Mót fyrir 5. 6. og 7. fl ka og kv

Þar sem krakkarnir í þessum flokkum hafa ekki haft sérlega mikið að gera í vetur (meira að segja svo lítið að foreldrarnir eru farnir að kvarta sáran)  hefur verið ákveðið að halda mót hér í Stykkishólmi miðvikudaginn 16. mai kl 18.00.

Hugmyndin er að þjálfari hvers flokks raði þeim í lið, krakkarnir fari í búninga, spili og hafi gaman. Að mótinu loknu munum við svo grilla saman.

Það er reyndar búið að reyna ýmislegt til að finna verkefni handa krökkunum í vetur.

Það er td búið að fresta SS mótinu á Akranesi tvisvar, sem 6. fl kv átti að fara á.