Áheitahlaupið – nú þarf að rukka inn áheitin

Áheitahlaupið var föstudaginn 25. mai og gekk ljómandi vel fyrir utan eitt óhapp sem varð áður en við lögðum af stað. En eftir það gekk allt vel og við komum á slaginu 19:00 til Ólafsvíkur eins og reiknað hafði verið með. Þar tók við pylsuveisla og leikur Víkings og Njarðvíkur sem lauk með 0-0 jafntefli.