6. fl ka Íslandsmótið á morgun sunnudag 8. júlí

6. fl ka leikur alla sína leiki á Íslandsmótinu á morgun sunnudaginn 8. júlí á Ólafsvíkurvelli. Fyrsti leikur er kl 11:00, mæting í Íþróttahúsið í Ólafsvík kl 10.00.

Eins og þið vitið er búið að flytja dagssetninguna og staðsetninguna á þessu móti fram og til baka. Einnig var upphaflega gert ráð fyrir því að öll liðin í riðlinum hefðu A- og B-lið. Því ætluðum við að mæta með alla okkar stráka svo allir gætu fengið að spila. Síðan hefur komið í ljós að Álftanes dróg bæði liðin sín úr keppninni, BÍ verður ekki með B-lið og Njarðvík mjög líklega ekki. Því eru það bara við og Grindavík sem eru með 2 lið. Við urðum því að bregða á það ráð að skilja nokkra stráka eftir heima þar sem fyrirsjáanlegt var að þeir fengju sama og ekkert að spila.